Miss july

18.03.2008 14:45:10 / dora84

Silence I kill you

                         Tími til kominn að setja smá inná hérna:)

  Fyrst og fremst Maja og Haukur eignast annað lítið kríli í ágúst, ég er ríkasta frænka í heimi.

  Er komin með vinnu, er að vinna á írskum bar í Kaupmannahöfn sem barþjónn, ein skemmtilegasta vinna sem ég hef verið í.
er búin að kynnast fullt af fólki, allir að koma með comment um Ísland, það kom einn um daginn og sagði að hann heur alltaf viljað prófa geysir, ég bara langar þér að skoða einn eða baða þig í honum, hann bara ég vil náttla baða mig í honum hehehe sé fyrir mig fyrirsögnina vitlaus dani hljóp inní geysi og sást ekkert meir til hans hehe:)
   Seinasta helgi var frábær, við vorum að dansa á meðan að við vorum að aðstoða, hvorugt með taktinn í lag haha:) ég manaði hann í að hoppa uppá barborðið í enda kvöldsins og hann gerði það, sátum saman til kl 5:30 um morguninn að spjalla við seinustu kúnnana og láta einsog fífl... á laugardeginum var ég að vinna með stráki sem heitir Lasse, vorum með fullt af dóti sem viðkemur St´Patricksday við vorum með stóra hatta og allir að hrósa hvað ég leit vel út öll merkt Guiness seldum alveg ótrúlega mikið það kvöld!!
<br>

  Ég byrja í EUC Sjælland 15 apríl, ætla að læra snyrtifræðina, kostar ekki krónu og er mjög sátt með það:) Eftir það langar mér að læra ljósmyndun og þá er allt komið hjá mér!!

  Næsta helgi er páskahelgin, ég er að fara á djammið með Sigrúnu á morgun, það verður vonandi stuð... fór með Maju og Hlynsa í gær á strikið að skoða írsku vitleysingana halda uppá sinn dag, það SNJÓAÐI takk fyrir allan tímann þannig að við gáfumst upp og fórum heim:) En vonandi fæ ég fullt af vöktum næstu helgi ætla samt að reyna að komast á djammið með Christian, ætlum að fara á Dubliners bara einsog við Sigrún gerum alltaf, það er sko aðal staðurinn, dansað uppá borðum, live tónlist fullt af fólki og alltaf nóg af bjóri gerist ekki betra!!!

  Emm wow það er mikið búið að ske en þegar að maður sest niður þá stíflast alltaf allt.. ekki nógu gott... jú 3 mánuðir þangað til að skvísurnar þær Kristín, Begga og Pála koma YEY, þær koma 27 júní held ég, ætlum að djamma af okkur rassgatið!!! Hróaskelda og læti. Hlakka ekkert smá til!!

  Jæja ætla að segja þetta nóg Gleðilega Páska!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 20:57:28 / dora84

Jólasveinninn kemur í kvöld... dadadada

Jólin á morgun yey



Þá byrjar stuðið bara á morgun, er búin að versla alla jólapakkana loksins, ég Maja og Elli fórum í gær til Köben að klára þetta.... það er ekkert smá kózý að vera hérna á þesum tíma... allir í góðu skapi og live tónlist útum allan bæ og allir í bænum að versla:) Fullt af flottum gaurum takk fyrir8)... ég sneri mér liggur við úr hálslið í gær:$, ekkert hægt að benda Maju á gaurana hún alltaf bara heee hvar... hún varð blind eftir að hún kynntist Hauki hehe:);)

Bara 6 dagar þangað til að maður fer á klakann.... hlakka ekkert smá til... Kristín og vonandi Begga koma að sækja mig og þá er bara farið beint í Lónið að slappa af, og svo verður tekið á því um kvöldið:) 8)Bogga var svo sæt að bjóða mér í mat förum til pabba hennar að borða og svo er það bærinn... þetta verður bara stuð!!!:haha:

Á fimmtudaginn fór ég með Martin og þrem vinum hans á djammið hérna í Haslev.... borgaði 50 kr og drakk eins mikinn bjór og ég gat þangað til að ég fór heim, ekki er það svona gott á Íslandi !!!!;)

Við ætlum að vera hérna heima á morgun, þarf bara að skutlast með pakka til Köge á morgun til hans Martin, og svo verður bara slappað af mmmmm. Á jóladag förum við svo til Svíþjóðar til Dóru frænku og verðum þar, spurning hvort að þau séu orðnir svo miklir svíar að þau bjóði uppá kjötbollur hehe man bara eftir því þegar að ég og Haukur vorum í skóla í Svíþjóð þá var það í jólamatinn og e-h fleira sem maður borðar daglega... hérna í Dk er líka mjööög furðulegur matur á þessum tíma... við verðum að fara að kynna þessu fólki fyrir hryggnum góða!!!!

Það er mjög mikið að vera að spá í að fá kött á heimilið, það verður náttla bara fyndið ég og mamma erum alveg skíthræddar við þessar elskur... en eftir að við fundum rottuna í bílskúrnum og drápum hana, b.t.w. herbergið mitt er þar... er kanski gott að fá eina til að hjálpa okkur í sumar með þessi kvikindi... oj já húsið okkar er reimt8|... ég vaknaði í nótt við umgang á efri hæðinni, ég fór upp að tékka en það voru allir steinsofandi, það var verið að labba um og færa hluti, það heyrðist mjög greinilega!!og þetta er ekki í fyrsta skiptið... mamma var einusinni ein heima og það lyktaði öll neðri hæðin af poppi... Ég og Goggi vorum um daginn úti að reykja og það var e-h að labba um á háhæluðum skóm... búum í sveitinni og smá spöl í næsta hús....við tékkuðum á þessu en það var enginn þarna... Haukur og Goggi hafa vaknað um miðja nótt við að e-h er að labba um húsið á háhæluðum skóm, þeir tékkuðu á þessu en sáu engann.... Hlynur hefur stundum bara setið á gólfinu og starað út í loftið einsog hann sé að horfa á e-h:$ ... þetta er allt mjög spes en eitt er vísst og það er að það er e-h hérna.... ooohhhh freaky!!!8|

en jæja ætla að segja þetta nóg...
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR ELSKURNAR MÍNAR!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 16:31:32 / dora84

Þú færð hrós fyrir að lesa þetta allt!!!!

                   Ok kanski kominn tími fyrir smá blogg

     Langaði bara að byrja að óska Kollu og Ármanni til hamingju með litlu prinsessuna, þau eignuðust litla snúllu 3. nóv og hún er alger gullmoli!!!:D

     Kristín kom hingað í september og var í viku, við fórum á djammið hérna í Haslev og það leið ekki lengi þangað til að borðið okkar fylltist af gaurum héðan og það var happy hour, borguðum um 600 krónur ísl. og drukkum eins mikinn bjór og við gátum frá 8-11 þannig að þið getið ímyndað ykkur hvernig við vorum á endanum hehe8), gaur sem heitir Martin skutlaði okkur heim á mömmu bíl, ætlaði bara að fá mér einn bjór í byrjun, hann keyrði 4 sinnum sama veginn og ég hef sofnað eða e-h og vissi aldrei hvar við vorum þannig að hann þurfti að snúa aftur við, hann stoppaði á bensínstöð og benti mér á að ég þurfti að muna leiðina heim og ég gat haldið mér vakandi og við komumst loksins heim, hann bentí mér samt á að hann hafi alltaf bara náð hálfri leið og þá rankaði ég við mér og vissi ekki hvar ég var hehe:^), en hann talar ennþá við mig þannig að honum fanst þetta greinilega bara fyndið... ég er snillingur ég veit8)  Á föstudeginum fórum við Maja og Kristín til Ballerupp að djamma með Sigrúnu í köben, það var mikið drukkið og já hef ekki séð Maju svona skrautlega í nokkur ár:)
     Á laugardeginum fórum við Kristín til Svíþjóðar til Selmu frænku, þar fórum við í partý með henni og Harrys til bróður hans, og svo fórum við í bæinn það er náttla bara snilld að djamma þar, ég æfði mig í sænskunni... I still got it!!! Selma og Harrys fóru heim snemma og ég og Kristín urðum eftir með bróður hans Harrys og vini hans, þetta var snilld við skemmtum okkur alveg snilldarlega!!!

     Bergur kom í heimsókn í byrjun október og var hérna í mánuð, hef ekki ferðast svona mikið í langan tíma, byrjuðum á að fara til Þýskalands viltumst soooldið mikið en enduðum í Hamburg, ágætur staður, daginn eftir fórum við til Svíþjóðar, fórum til Gislaved þar sem ég bjó í 7 ár, bara geðveikt að koma þangað aftur!!! enduðum svo hema hjá Selmu frænku í smá spjall áður en við fórum heim. Eftir það ákváðum við að fara til Hollands, þurftum að keyra í gegnum Þýskaland, Bergur leigði Audi og það vara bara sweet að keyra um á autobaun, hann fór uppí 210 og ég í 200... og takið eftir ENGIN LÖGGA AÐ BÖGGA MANN!!!!! tekur um 7 tíma að fara þangað en vorum aðeins lengur með öllum stoppunum. Við gistum þar í eina nótt eyddum kvöldinu á börum og í Tívolíinu, fórum í svo geðveik tæki ég var einsog 5 ára krakki( Bergur benti mér á það allaveganna) eyddum svo deginum eftir í að rölta um bæinn, þetta er sko staður sem allir verða að fara til...

     Bergur ákvað svo að bjóða mér til Parísar, jújú er hægt að finna betri gaur??? neeee... vorum þar í 2 nætur og 3 daga, fyrsta daginn löbbuðum við upp á 2 hæð á Eiffelturninum, ég hélt ég myndi deyja.... sagðist ætla að hætta að reykja þegar að við vorum hálfnuð en um leið og við komum niður var ég svo stolt af mér að ég kveikti mér í sígó hehe... við fórum að sigurboganum og í Parísarhjólið sama daginn, löbbuðum semsagt mjöööög mikið!!!! Daginn eftir fórum við að Louvre safninu, sáum Monu Lísu og læti það var alveg pakkað þarna inni. Hann keypti e-h ferð áður en við fórum þannig að við þurftum að vera mætt klukkan 6 á staðinn þannig að við gerðum ekkert meira þann daginn, mættum þangað í okkar fínasta pússi og það var rúta sem tók okkur og hópinn að Eiffelturninum, fórum upp á veitingastaðinn á 1 hæð sem heitir Altitude 95, þar kynntums við e-h englendingum, konu og manninum hennar algerar dúllur. Eftir matinn röltum við öll að ánni Seine þar sem bátur fór með okkur niður ánna, við settumst úti ásamt næstumþví öllum, ekkert smá falleg borg, þetta tók um klukkutíma og eftir það fórum við aftur að rútunni og hún fór með okkur að Moulin Rouge, þar settumst við með fullt af fólki fengum kampavín og læti og horfðum á eina af vinsælustu sýningum í heimim, þetta var bara ein besta ferð sem ég hef farið í!!! Daginn eftir fórum við að kirkjunni Notre Dame, það var nokkra klukkutíma röð og við vélin okkar átti að fara um 6 þannig að ég svindlaði okkur inn, fórum inn um útganginn, ekki stolt af mér en varð bara að sjá hana!!

     Næst á dagskrá er afmælið hjá Sigrúnu næstu helgi, svo er það fótboltaleikur með Martin, gaurinn sem skutlaði okkur Kristínu heim um daginn, hann hringdi og spurði hvort að ég vildi koma með ég var ekki lengi að svara... það er sko Ísland-Danmörk ég sagðist ætla að mála íslenska fánann í framan og sitja við hliðina á honum... þetta verður bara snilld... og já Bergur ætlar að reyna að koma hingað um jólin og ég heim um áramótin, það kann enginn að halda jafn góð áramót einsog íslendingar!!!!

     En jæja held að þetta sé bara komið þetta er bara heil ritgerð hjá mér hehe:)

 

                   Þangað til næst   TATA


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 19:39:44 / dora84

knock knock...


                                Hey hó\

     Kanski kominn tími fyrir smá slúður!!! ok fór til Ísland fyrir stuttu í helgarferð... tók vísst í hendina á Sigrúnu umþað þegar að ég var orðin soldið vel í því á djamminu í Köben... en maður verður að standa viðorð sín þannig að ég skellti mér með henni... náði ekki að hitta marga, var í svo stuttan tíma... en ég ætla að reyna að fara aftur um áramótin þá ætla ég að reyna að hitta alla!!!

     Mmmm við unga fólkið hérna heima fórum til Árhús seinustu helgi í heimsókn til pabba og co að hitta nýja fjölskynldumeðliminn... hann er ekkert smá mikið krútt ... gistum þar eina nótt og fórum svo í löveparken það er dýragarður sem er rétt hjá á leiðinni heim... maður keyrir í gegnum hluta af honum bara einsog safarí... ljónin löbbuðu bara fyrir framan bílinn og gíraffar það var bara snilld!!! en þessi ferð vara bara fyndin ég og Haukur vorum að fara á kostum sem bílstjórar ég braut um 300 umferðabrot og hann um 500 hehe en bíllinn komst í heilu lagi heim:)

     Ég mamma, Bóbó og Elli fórum til Þýskalands um daginn að versla áfengi... jújú það liggur við að þeir borgi manni fyrir að versla, það er svo ódýrt en fyllum alltaf ískápinn í bílskúrnum sem by the way við búum liggur við í:) erum alltaf þar að vinna... herbergið mitt alveg að verða tilbúið yey:)

     Wow næstumþví búin að gleyma mamma hélt upp á afmælið sitt í gúst,það var allt fljótandi hérna, nágrannar okkar komu og Selma og kallinn hennar frá Svíþjóð það var geðveikt stuð við kíktum í bæinn, meira að segja Haukur og Maja komu með og þá er sko mikið sagt!!!

     Mmmm wow það er svo mikið búið að ske ég er samt alveg tóm... en þið sem þekkið mig vitið alveg hvernig ég er þannig að það er ekkert að afsaka hehe:) Kristín kemur á morgun ... það verður farið til Svíþjóðar að djamma hjá Selmu í Helsingör og já drukkið... síðan er Bergur að koma eftir 3 vikur þá verður ferðast meira um :) þannig að það er bara allt að ske:)

     Kolla mín á að eiga í október ég er að verða (frænka) yey
Þá er bara ekkert meira að segja frá allaveganna ekki sem ég man eftir í augnabliki... en kemur meira seinna...

 

                                   TATA Í BILI

\


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 16:54:35 / dora84

in the DK baby


Hey hó

Ætlaði bara að henda smá inná hérna... er búin að vera hérna úti í viku en samt mikið búið að ske... fórum seinasta laugardag með Lauru til Svíþjóðar, hún var að fara aftur til íslands eftir langa dvöl hjá fjölskyldu minni, fékk bara að sjá þessa elsku í 2 daga ...:(

Ég eignaðist lítinn bróðir um daginn alger prins ... ætlum að fara í heimsókn til þeirra í næstu viku... segi bara til hamingju pabbi og Brynja:):D

Haukur er búinn að kenna mér á krossarann hans Ella, Elli viðbeinbraut sig daginn sem ég kom hingað, hann ætlaði að reyna að stökkva á hólnum hérna fyrir utan og gleymdi að klemma saman hnjánum þannig að hann flaug af og hjólið beint á viðbeinið .. ekki gott sko!!! en núna er ég bara á því og lít út einsog skemmdur banani á fótunum ég er of lítil á hjólið þannig að ég er alltaf að reka mig í ef ég stekk eða fer of hratt en þetta er svo þokkalega þess virði, mæli með að allir prufi, þið getið þá ekki hætt!!!.. mamma er að fá taugaáfall að horfa á okkur á þessum tækjum þannig að hún er hætt að horfa kanski því að ég er komin í annan gír og fer alveg þokkalega hratt, er næstumþví búin að detta 5 sinnum en næ alltaf að bjarga mér(7,9,13) hehe;):$

Mmm við fórum í dýragarðinn í Köben á fimmtudaginn með Selmu frænku og kærastanum hennar ekkert smá flott dýr þarna, ísbjörn, ljón og læti!!! í næstu viku förum við til Þýskalands til að versla fyrir afmælið hennar mömmu sem hún ætlar að halda næsta laugardag... það verður sko fullt hús hérna, Dóra frænka og allur barnaskarinn hennar kemur frá Svíþjóð og líka Selma frænka... Sigrún frænka og Ingibjörg vinkona hennar koma frá Íslandi og síðan erum við með svo frábæra nágranna hérna og þau ætla öll að koma... erum búin að undirbúa huges brennu hérna fyrir utan, og allt verður fljótandi í áfengi, kostar náttla ekkert að kaupa það hérna hehe:) 8)

Ég og Maja fórum í gærkveldi á barinn hérna í bænum, sátum fyrst bara tvær að spjalla en síðan komu um 10 gaurar og fluttu borðin sín til okkar og við vorum umkringdar gaurum sem kunnu ekki stakt orð í ensku jújú, veit ekki afhverju þeir voru að setjast hjá okkur, gátu ekkert talað við okkur.:$.. Maja reyndi að tjá sig smá en þessir danar tala svo hratt að hún skilur bara annaðhvert orð....

Jæja ætla að segja þetta nóg í bili, ætla að reyna að henda myndum inná við tækifæri, erum með svo lélega nettengingu að ég verð heilan dag að því... :whut:

þangað til næst bleble;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 13:17:41 / dora84

I´m young and I love to be young!!!

       Hæhæ já ég er sammála þér Kolla mín ég er alls ekki að standa mig í þessu!!!     

     En já ég fékk bara viku í sumarfrí um daginn. Ég og Guðrún mín fórum hringinn í kringum klakann í júní... ekkert smá gaman... við gistum fyrstu nóttina á bændagistingu við hlógum okkur máttlausar þegar að við komum inn í herbergið þetta var minnsta herbergi sem ég hef séð undir súð og læti!!! Við röltum að Svartafoss áður en við fórum að sofa ekkert smá fallegur foss...  við gátum hvorug sofnað þetta var soldið freaky staður þannig að ég tók upp vídjókameruna og setti nightvisionið á og á núna á ég mjög skrautlega upptöku af henni Suðrúnu minni (hehe stal þessu af Ragga mínum)..... Við fórum í alla króka og kima á þessu blessaða landi... við fórum til Akureyrar til hennar Kollu minnar og fengum að gista hjá þessari elsku...  hún er bara með bumbubúa í sér ég er ekkert smá stolt frænka J             

     Við lögðum af stað í bæinn daginn eftir en fyrst fórum við að Myrká þar sem sagan um Djálkninn á Myrká og Garún átti að hafa skeð.... síðan fórum við að Snorralaug og Hraunfossa og m.m.  við skrifuðum lista áður en við fórum og náðum að skoða alla þá staði sem okkur langaði að sjá...  wow þetta var æðisleg ferð hefði ekki getað valið betri ferðafélaga hún meira að segja lánaði mér skóna sína þegar að ég rann ofaní fyrsta fossinn sem við skoðuðum og já Dóra ljóska tók ekki með sér auka skó hehehe...:$          

     Mmm mamma og co eru flutt til Danaveldis ég er núna ein hérna, Hebba frænka var svo góð og leyfði mér að vera hjá sér þangað til að ég yfirgef ykkur L við keyptum okkur 200fm hús sem er í 30 mín fjarlægð frá Köben... ég er ekki búin að skoða en það er vísst GEGGJAÐ!!!  Fer nú bara eftir ca mánuð wow tíminn flýgur!!!     

     Ég og Raggi minn erum að fara til Eyja á þjóðhátíð... yey Jusin, Nick og Scott eru að koma hingað í enda júlí og þeir ætla að koma með okkur þangað... það verður sko drukkið og sungið og já vil ekki segja frá of miklu sem á eftir að ske á þessari eyjuJ hehe maður má ekki segja of mikið....8|     

     Það er búið að ske svo mikið núna í sumar en ég er ekki að nenna að skrifa frá öllu... ég væri svooo til í að getað sett myndbandið frá ferðinni okkar Guðrúnar um landið en kann það ekki... þið mynduð hlægja ykkur máttlaus hehehe:D.... en jæja ætla að halda áfram að vinna þið verðið að bjalla í mig 27 júlí þá á kellingin afmæli og þá bara ca 1og ½ vika þangað til að ég fer út þannig að holla upp peeps :haha: en þangað til næst                                                            Tata8)            


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:04:09 / dora84

Dóra the explorer hehe

                           Jæja þá verð ég víst að blogga       

     Fékk bara kvörtun frá henni Eydísi minni en jæja mmm seinustu helgi fórum við Súsanna til Víkur í smá roadtrip... það var ekkert smá flott þarna, við röltum á ströndinni og sátum í klukkutíma að spjalla og kasta steinum, hún tók meira að segja lag fyrir mig og fólkið sem var þarna horfði bara á okkur og hristi hausinn,, klikkaðir íslendingar’’ hehe en eftir það fórum við í sund og mín bara brann , jáhh fyrsta skiptið sem ég brenn á þessum klaka thank u very mutch!!!  Eftir það keyrðum við á Klaustur, þar viltumst við þegar að við vorum að leita að hótelinu, fórum á veitingastað þar sem 2 myndarlegir strákar voru að vinna, þeir vísuðu okkur leiðina að hótelinu en vorum samt mættar þangað 30 mín seinna að borða... og náttla skoða gaurana aftur hehe  en eftir matinn var skundað á hótelið aftur, þar settumst við í heita pottinn bara tvær með náttúruna sem útsýni...... og síðan var farið í gufubað... ekkert smá nice hjá okkur... daginn eftir fórum við aftur til Víkur að rölta um og svo til Hveragerðis í sund jahh hvað get ég sagt þetta var lúxus hjá okkur!!!     

 

     Ég og Guðrún mín erum búnar að vera ekkert smá duglegar að skoða okkur um hérna í kringum Reykjavíkina.... erum búnar að skoða alla skemmtilegu staðina ... fórum að Grímshól... Krýsuvík... í Heiðmörk... o.fl.   emm wow við vorum að missa okkur í þessum leiðangri  næst á dagskrá er að fara á Jökulsárlón fyrstu helgina í júní, þetta verður geggjað, við erum búnar að taka svo margar myndir að það á eftir að kosta mánaðarlaun mín að framkalla allar hehe en það er gaman að eiga svona myndir, verð að getað montað mig að klakanum þegar að ég fer út. Mamma og hinir fara í júní og svo kem ég á eftir þeim í ágúst...  ok verð bara að segja þetta nóg ætla að halda áfram að vinna.... en vonandi var þetta nóg Eydís mín, sakna þín litla snúllan mín, verðum að hittast áður tata í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 09:12:15 / dora84

Nokkrar frá Krýsuvík

spassar 119

spassar 112

spassar 126

hehe gaman að þessu... ég er orðin svooo löt að blogga en vonandi hafið það bara gaman af myndum 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 09:24:53 / dora84

Nokkrar myndir

                 Jæja sorry nenni ekki að blogga en hérna eru nokkrar myndir frá helginni... við fórum út að borða á Carúso með vinnufélugunum og síðan var farið í partý hjá Mark og Lee, þeir eru að yfirgefa okkur hérna á Íslandi .... jáhh verð svo að monta mig mamma og Goggi voru að koma frá Búdapest og gáfu mér geðveik föt... love u guys kiss kiss:D

Kveðjuparty hjá Mark&Lee 066

Kveðjuparty hjá Mark&Lee 113

Kveðjuparty hjá Mark&Lee 131

Kveðjuparty hjá Mark&Lee 125

Kveðjuparty hjá Mark&Lee 109


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 09:29:52 / dora84

ohhh listen to the radio.....

                  Daddara massa blað...  hehehe ein lame!!!!       Wow hvað maður er búinn að vera latur að blogga.... þetta er bara til skammar......

En jæja ákvað að koma með eina færslu....

  

     Á sumardaginn fyrsta fórum við Guðrún og Gassi og fengum okkur ís mmmm ég elska ís;)   eftir ísinn fór Gassi aftur að vinna og við sóttum Maju og litla prinsinn minn og fórum á Bíladelluna 2007  ekkert smá flottir bílar wowowíwá hehe....  eftir það skutluðum við dúllunum heim og fórum á rúntinn.... þessi rúntur lengdist smá hjá okkur... við fórum í Krýsuvík að spassast í næstumþví 3 tíma að taka myndir hehehe  þetta var SNILLDAR ferð hjá okkur.... ætlum sko að endurtaka þetta!!!!

 

     Á Föstudaginn bauð Unnur okkur Örnu og Hildigunni í mat.... hef bara eitt orð til að lýsa matnum jömmmííííí ... eftir matinn fengu Unnur og Arna sér í glas.... ég ákvað að vera góða stelpan og ég var á bíl og skutlaði þessum elskum í bæinn..... var kölluð bailerinn ... bara like usual.... en ég var þó ekki þunn daginn eftir hehehehe..... varð náttla að spara mig fyrir laugardaginn... þá var bjórkvöld hjá vinnunni á Sólon..... jaha veit ekki hvað er hægt að segja annað en að ég var uppá mitt besta....  ég endaði á flakkinu um allan bæinn með ,,besta’’ vini mínum honum Lee... hmhmmm.....  ég var að segja öllum að hann væri andlega heftur.. og hvort að þau myndu vilja heilsa honum því að hann ætti enga vini.... hehehe það trúðu mér allir og heilsuðu tappanum  hreinasta snilld!!!!!

 

               En jæja er að fara á e-h námskeið..... trallalalala  see ya l8er

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 10:43:29 / dora84

Buenos diaz

     Jahaaaa... alltaf jafn gaman að mæta í vinnuna eftir svona langt frí.... hmhmmm   :S 

     En jæja er alveg búin á því og nenni ekki að skrifa mikið... en ég ætla að setja nokkrar myndir frá miðvikudagskvöldinu, það var stelpupartý heima hjá okkur... en auðvitað mættu elskurnar okkar Raggi og Gassi... en þeir stoppuðu nú bara stutt... I wonder why hehehe!!!    :DStelpudjamm 040

 

     Mmmmm það er alltof gott að sofa svona út....  ættum að fá fleiri svona frí..... en sumarið alveg að koma yey.....8)

      Stelpudjamm 064

Jæja segi þetta bara gott ætla að halda áfram að vinna skrifa bara meira næst... :lol:

Stelpudjamm 052

Stelpudjamm 057

 

                                           AU REVOIR8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 10:30:09 / dora84

Barceloooona !!!!!!!!!!!

     Spánarfararnir..

    

     Ég var EKKI að nenna að blogga í gær sorry.... maður vara alveg að leka niður í gær... við vorum nebbla ekkert mikið að sofa í þessari æðislegu ferð!!!!

Það var mikið hlegið þarna <img src=" width="500" height= "375">     

     Á fimmtudaginn eftir vinnu fórum við Arna mín til Svandísar uppí Keflavík, fengum að gista þar svo að við myndum ekki lenda í traffíkinni morguninn eftir... við fórum í trivial persuit og fengum okkur rauðvín með túrtildúfunum;)  vöknuðum svo snemma og þau skutluðu okkur á flugvöllinn...  þar byrjaði svo drykkjan hjá öllum... við keyptum okkur bjór sem við drukkum og eplasnafsflösku sem ég og Arna kláruðum í rútunni á leiðinni á hótelið....

Það var ekkert verið að segja okkur hvar við vorum þegar að við lentun föttuðum það sjálf þegar að við sáum skilti hehe;)

Sjáðu ég er með brjóst<img src=" width="500" height= "375"> 

     Við fengum herbergi á þrettándu hæð á Hilton hótelinu þetta er flottasta hótel sem ég hef séð.... wowííííí ég vildi ekki fara... sturtan var geggjuð!!!! Og útsýnið jumýýýýy  en við vorum 5 mín að taka okkur til og fórum svo með strákunum í verslunarmiðstöðina, keyptum nokkra poka af áfengi... fórum með það inná hótelherbergið og svo fórum við með þeim út að borða á geðveikum stað við smábátahöfnina... þetta var ekkert smá flott... pöntuðum 7 flöskur með matnum og síðan  var fengið sér viskí hehe..... eftir matinn fórum við uppí herbergið hjá strákunum á 20hæð takk fyrir og þar fóru allir á kostum hehe;)  fengum okkur náttla aðeins meira að drekka....síðan var farið í bæinn.... ég og Arna mín fórum heim um tvö leytiið, alveg búnar á því eftir erfiðan dag;)

and again 

     Á laugardaginn vöknuðum við rétt fyrir 10 og fórum í skoðunarferð um Barcelona.... við vorum ekkert að lesa smáaletrið og vissum ekki að rúturnar myndu ekki fara aftur á hótelið, okkur var dömpað í miðju borginna og þurftum að redda okkur heim...... við hoppuðum í næsta leigubíl og fórum í lobbýið og fengum okkur bjór.... eftir bjórinn fórum við og lögðum okkur fyrir kvöldið;)  um sjöleytið fórum við til strákanna og fengum okkur í glas og um 8 var farið niður í matinn,  það var fyllt í glasið um leið og þú fékkst þér sopa þannig að við vorum orðnar soooldið skrautlegar hehehe.... eftir matinn var farið í uppí herbergi  og drukkið aðeins meira og síðan fórum við í bæinn;)  við fórum á diskó sem að allir barþjónarnir voru allir hálfnaktir..... og ég get bara sagt eitt um barþjónana wowíííííí´mmmmm við vorum að til hálf 7 um morguninn og fórum svo beint í morgunmatinn með Sisco....  þjónarnir fylgdust allir með okkur því að við Arna hættum ekki að hlæja, vorum komnar með svefngalsa á hæsta stigi hehe eftir matinn fórum við og lögðum okkur í ca 1 og ½ tíma og já Tomek þurfti að hringja í okkur og vekja okkur því að fyrstu rúturnar voru lagðar af stað ... jahh við hefðum misst af rútunum ef hann hefði ekki hringt....  það var öllu hennt í töskurnar og hlupið niður... við litum ekki í spegil fyrr en að það var komið heim og ég skal segja ykkur það að það var ekki mikil fegurð þar á ferð hehehehe  en við erum báðar  að jafna okkur á þessari ferð enná en einsog ég sagði áður þá var ekki mikið sofið en ALLT of mikið drukkið hehe;)

Stuð  Jæja það er komið nóg... það eru margar fyndnar sögur sem hægt er að segja frá en ég er ekki að nenna að skrifa svona mikið.....  ég segi bara frá því seinna...  en ciao bella y bello;) eða eitthvað hehe8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 10:43:13 / dora84

lúúúúúvvvlýýýý

                            4 dagar í óvissuferðina..........                   

     Já það styttist í þennan skemmtilega atburð!!!!

        árshátið egils og fleira 020

     En ætlaði bara að segja frá seinustu helgi... á laugardaginn vöknuðum við Arna klukkan níu og hringdum í Tomek vin okkar....  síðan hringdi ég í Hauk og fékk lánaðan jeppann hans og þrjá vitleysinga sem heita Hader, Vírus og Tara...  við keyðum í Heiðmörk, lögðum bílnum og fórum að leika við hundana....  ég var kaffærð nokkrum sinnum af honum Tomek... já ég og Arna vorum svartar niður á kinn eftir þessa ferð!!!    Í eitt skiptið sem ég datt í snóinn fannst Vírus og Hades það voða sniðugt að ráðast á mig og það endaði með að Arna þurfti að ná taglinu mínu úr kjaftinum á Hades... hehe já ég hefði viljað vera áhorfandi og horft á þennan atburð...... hehehe ;) 

 \      árshátið egils og fleira 021

     Um kvöldið kom Gassi og sótti okkur og fór með okkur til Magga... þar vorum við þrjú að drekka  og allir hinir edrú hmhmmm ég og Arna einsog alltaf sögðum lameass sögur sem höfðu engan tilgang..... og við hlógum af okkur sjálfum... ekki einsog hinir fundumst við fyndnar!!! Nema náttla Maggi hann var líka orðinn skrautlegur einsog við !!!\     

      Eftir partýið fórum við í Hafnarfirðinn í Haukaheimilið ....  þar var borðað og dansað... svaka stuð þar....  og síðan var kíkt í bæinn eftirá....       þ

     etta var bara fínasta helgin...  og já 4 dagar í utanlandferðina.... ætla að halda áfram að vinna   tata í bili\

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 09:45:36 / dora84

I´m rubber ur glue everything you say bounces of me and sticks on u;)

                                Blogg segiðið;)     

      Jáhh hvað get ég sagt.... ekki mikið að ske í lífi mínu núna..... neeema ég og Arna mín erum að fara til útlandana 23 mars.... við komumst í óvissuverðina YEY eina leiðinlega er að Guðrún, Begga og Sirrý elskur voru ekki á listanum.... en við erum allar með krosslagða putta um að það verði hringt í þær í dag og sagt að þær komast!!!!!      coolistar dauðans..         

     Seinustu helgi var bara nokkuð góð... á föstudaginn fórum við Guðrún á rúntinn um kvöldið.... það var talað um allt bókstaflega!!!!  Á laugardaginn var svo vaknað um 9 og farið í baðhúsið að hitta Heiðu... þar fórum við í tíma sem ég er ennþá að þjást fyrir að hafa farið í  hehe ég er í engu formi!!!  Um kvöldið fórum við Arna í innflutningspartý til Unnar og Steina....  þar var fullt hús og mikil stemming....  Eyþór var síðan svo sætur að skutla okkur í bæinn;)....  þar tók mikil bjórdrykkja við .... ég hætti alltaf að drekka þegar að ég kemst á vísst stig.... eeen neinei það var alltaf settur nýr og nýr bjór fyrir framan okkur allt kvöldið... við vorum líka orðnar soldið skrautlegar í endanum hehe;)      

     Verð bara að deila einu með ykkur.... Arna mín pantaði pízzu þegar að við komum heim... við sofnuðum báðar og heyrðum ekki í gaurnum sem kom með hana.... hann gerði sér líið fyrir og festi dyrabjöllunni inni með tannstöngli og bréfi.... hvað er málið með fólk??????  Arna náði að stoppa hana með tilþrifum!!! Hehe jáhh við skulum bara segja að kungfu hafi komið til sögu þar heheh love u Arna mín yaaaaa!!!!       

     Næstu helgi er svo árshátíðin hjá ölgerðinni Maggi og Gassi voru svo sætir að bjóða mér og Örnu með.... já það þýðir að við þurfum að vera fínar, kanski maður skellir sér í kjól.... mjög sjaldséð sýn ... við erum ekki alveg kjóla og pils stelpur en maður lætur sig hafa það í eitt skipti;)       

     Jáhh gleymdi að skrifa eftir seinustu helgi... þá var staffapartý... fullt hús hjá okkur.... daginn eftir kom nýji nágranninn okkar með húsreglur því að við höfðum vísst haldi fyrir henni vöku allt kvöldið hehe hvað er þetta .... eftir eitt skipti fáum við kvörtun....  aðeins að slaka á og live a litle!!!!Sætu sætu hennar Örnu      

                                En jæja ætla að halda áfram......  tata í bili


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 16:55:23 / dora84

msn sagan hennar Guðrúnar sem ég sá eftir erfiðan dag;)

Einu sinni var lítil Stubbalína sem hét Dóra

 DramaQueen says:

Hún var svo góð og blíð við alla...

 DramaQueen says:

Allir sem að kynntust henni og sáu ljómuðu því að dóra hafði þau áhrif á fólk

 DramaQueen says:

að því hlýnaði að innan við það eitt að líta á hana..

 DramaQueen says:

Dóra mátti aldrei sjá neinn sem átti bágt.. því að hún vildi að öllum liði vel..

 DramaQueen says:

Dóra var rík á þann hátt.. að hafa jafn mikla fegurð að innan sem að utan

 DramaQueen says:

Og fólk sem að leit á hana gat séð það á því einu að horfa í augu hennar

 DramaQueen says:

Nema ekki allir voru eins góðir og Dóra

 DramaQueen says:

Og eins og svo oft gerist var til fólk sem sá góðmennsku og hjartahlýu hennar Dóru og sáu sér unnt um að misnota þá góðsemi sem að Dóra gaf öðrum

 DramaQueen says:

Dóru leið illa, og skildi ekki hvað það var í fari hennar sem að lét einhvern vilja særa hana svona..

 DramaQueen says:

Nema Dóra hafði gefið öllum svo gott

 DramaQueen says:

Að fólki leið illa að sjá hana Dóru litlu líða illa...

 DramaQueen says:

Og fólk sá að ef að Dóra getur gefið svona mikla góðsemi og hlýju þrátt fyrir erfiða tíma geta þau líka gert það sama við Dóru

 DramaQueen says:

Og vinkonur hennar Dóru sem að á erfiðum stundum þurfa lítið meira en að horfa í augu hennar til að vita að það er til slík góðmennska og hlýja í þessum heimi

 DramaQueen says:

Svo án Dóru myndu margir starfsmenn sem landsmenn vera búnir að gefa upp þá litlu von um góðmennsku og hlýju.. en þökk sé manneskju eins og Dóru er sú von enþá til

 DramaQueen says:

Þetta er sagan sem að ég bjó til um þig

 DramaQueen says:

 DramaQueen says:

Dóra mín án manneskju eins og þín gæti ég ekki verið eins sterk og ég er í dag

 DramaQueen says:

Love you

Dóra Sjöfn says:

hehe þú ert svo mikið krútt love u 2 sweetpiesið mitt...

 

hehe þetta var saga sem Guðrún litla var búin að skrifa fyrir mig á msn.. hehe hún er svo mikil elska... vildi bara shera þessu með ykkur  en hún er algert yndi fær mann alltaf til að brosa... love u sooo mutch my litle sugarbee hehe kiss kiss


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7